Þegar ég hitti fólk á förnum vegi á ég til að svara því að ekkert sé að frétta, svo sem, þegar það spyr. Ég hugsa að flestir geri þetta. Ég geng a.m.k. stundum á eftir fólki og fæ þau svör að þau séu flutt, búin að skipta um vinnu og taka nýja trú og það veit ekki hvað og hvað. Þess þá síður ég.
Undanfarið hefur fólk ekki þurft að þráspyrja mig. Ég gríp mig áður en ég svara á sjálfstýringu og segi frá giftingarveislu okkar Agnesar í júlí og ef fólkið var viðstatt segi ég því frá brúðkaupferðinni. Ef ég er spurður út í það bæti ég við hvernig gengur með handritið. Svolítið gott að vera með handrit í pokahorninu, það er alltaf eitthvað að frétta af því, því að jafnvel þó það sé ekkert að frétta af því þá er það einmitt frétt. Kannski ögn leiðinlegri frétt en þegar allt er að frétta af því.

Við vorum mjög ánægð með veisluna. Hún byrjaði í garðinum okkar. Við vorum tilbúin með plan b, ef veðrið hefði orðið leiðinlegt, en þurftum ekki á því að halda. Það hefði ekki getað verið betra veður. Sólin skein á heiðum himni og blankalogn. Bongó blíða. Hrútur vinur okkar gaf okkur saman (táknrænt en ekki á pappír þar sem við höfðum græjað skrifræðishliðina í febrúar). Í stað hringa, sem við bárum þá þegar, settum við upp derhúfur sem ég lét gera. Eftir á spjölluðum við og settum okkur í stellingar fyrir ljósmyndatöku áður en við fórum í skrúðgöngu frá heimili okkar, með tveimur sögustoppum á leiðinni, niður á Ölver þar sem veislan var haldin. Karólína Rós, vinkona og veislustjórinn okkar, leiddi halarófuna.

Veislan á Ölver var stórskemmtileg. Nákomnir fóru með ræður, Rebecca Scott Lord flutti erótíska smásögu byggða á fyrstu kynnum okkar Agnesar, við sungum karaeoke lag hvort til annars (ég söng Lovely Day með Bill Withers og Agnes söng ) og viljugir gátu sett miða í hatt og nokkur heppin fengu að syngja. Svo var auðvitað dansgólf til lokunnar.
Eitt af því sem ég var sérstaklega ánægður með var að hversu miklu leyti við náðum að gera daginn að okkar degi. Það getur verið snúið fyrir mann með mótþróaþrjósku að taka þátt í að halda viðburð sem þennan, eins bundinn í hefðir og venjur eins og hann er. Mér fannst ég þó aldrei detta í hlutverk, aldrei vera að leika eftir handriti annarra.
Í síðasta bloggi talaði ég um að lítið breyttist við athöfnina hjá sýslumanni. Við hjónin vorum sammála um það að eftir þessa veislu var eitthvað breytt. Þetta var orðið að meiri alvöru. Ég held að fleiri heilastöðvar hafi skilning á því að hundrað manns mæti og fagni með okkur en á því að skráning breytist í þjóðskrá.